Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Ítölsk og gómsæt er það kemur upp í hugann þegar þú smakkar þessa látlausu köku. Auðvitað verður þú samt að elska möndlur eins og ég. Ítalir eru snillingar í kökugerð með möndlum og það er alltaf eitthvað yndislegt og hversdagslegt við þeirra kökur. 4...
Hér er kaka úr upskriftabók mömmu. Þessi rúlluterta var oft í saumaklúbbnum og þótti mjög frískandi og góð. Nú er aftur farið að framleiða feitan sýrðan rjóma sem er svo yndislega góður í bakstur og sem meðlæti með köku í staðin fyrir þeyttan rjóma. Kakan:...
Hér er uppskrift að köku sem ég hræri gjarnan í á sunnudegi þegar von er á gestum eða bara til að lýsa upp notarlegan sunnudag. Ég á gjarnan ber í frysti og því upplagt að nota þau. Ljúf og kósí kaka, góð með kaffi eða te. 120 g smjör, mjúkt 150 g sykur...
Pönnukökur eru samofnar matarmenningu okkar og fátt þjóðlegra. Mínir krakkar lærðu að baka þær um 10 ára aldurinn og eru enn að. Hér eru þær bragðbættar með sítrónu en Frakkar bera þær gjarnan fram þannig. 200 g hveiti ½ tsk. salt ¼ tsk. matarsódi 1 msk....
Hér má nota hvaða ber eða ávexti sem er. Möndludropar eru missterkir, farið varlega í magnið, gott að smakka deigið til. Það styrkir samt bragðið af möndlunum að nota smávegis. Bökubotn: 180 g hveiti 5 msk. flórsykur 120 g kalt smjör í bitum 1 eggjarauða...
Peruterta var ein af þeim tertum sem maðurinn minn ólst upp við og kom með uppskriftina með sér þegar við byrjuðum að búa saman. Hún er bökuð reglulega og er uppáhalds tertan í hans fjölskyldu. Uppskriftin birtist í Ljóma-smjörlíkis bækling fyrir mjög...
Hér er uppskrift að vinsælli köku sem gekk gjarnan undir nafninu kakan með ljóta kreminu. Bananinn skilur sig svolítið frá smjörblöndunni og verður skrítinn en bragðið af kreminu er þó undurgott. Þetta er kaka sem margir þekkja og ef ekki er tími til...
Falleg og fínleg og var uppáhaldskaka pabba míns. Líklega fínlegt koníaksbragðið sem hefur heillað. Þessi er frekar lítil, líklega fyrir 8 en undurgóð á bragðið. 200 g hnetukjarnar 120 g flórsykur 4 eggjahvítur Á milli. 4 dl rjómi 1-2 msk. koníak Ofan...
40 stk. Botnar: 3 eggjahvítur 200 g flórsykur 200 g möndlur, malaðar fínt Hitið ofninn í 190°C (180°C á blástur). Þeytið eggjahvítur stífar, þ.e. að hægt sé að hvolfa skálinni og eggjahvítan dettur ekki úr henni. Passið að skálin sé tandurhrein, ef minnsta...
Sítrónukökur hafa alveg sérstakan sess hjá mér, það er eitthvað ómótstæðilegt við sætt og súrt saman. Hér er uppskrift að fallegri rúllutertu sem er marens. 5 eggjahvítur (ca. 150 g) 280 g sykur 50 g hnetur eða möndlur, saxðar fínt flórsykur til að dusta...
Mamma elskaði að halda kökuboð. Hún átti margar frábærar uppskriftir að kökum og eyddi gjarnan góðum tíma í að skipuleggja, skoða uppskriftir og undirbúa kökuboðin. Þessi kaka er svolítið sérstök, ekki mjög sæt en eitthvað mjög fínlegt við bragðið. 150...
Gyðingakökur voru bakaðar fyrir jól á mörgum heimilum hér áður fyrr og eru enn vinsælar. Í Danmörku eru þær kallaðar "jödekeger" og væntanlega kom nafnið og uppskriftin að þessum fallegu kökum þaðan. Venjulega voru stungnar út kringlóttar kökur en gaman...
Þessi fallega terta er sannarlega drottningin á veisluborðinu. Uppskriftina eiga margir og margar fjölskyldur sem eiga hana sem uppáhaldstertuna. Ég baka hana í 22cm formum svo hún verði há og glæsileg. Hún er best daginn sem hún er bökuð. Draumterta...
Margir af eldri kynslóðinni kannast eflaust við kornflextertu en ekki er víst að yngri bakararnir þekki hana. Þessi kaka á sér langa sögu í minni fjölskyldu og var gjarnan bökuð á sunnudögum. Kakan er best daginn sem hún er bökuð, kornflexið verður svolítið...
Mamma bakaði þessa lagtertu alltaf fyrir jólin. Hún bakaði aldrei klassíska lagtertu en ömmusystur mínar bökuðu hinsvegar mjög góða lagtertu. Mér fannst þessi lagterta alltaf ótrúlega góð og fannst jólin koma þegar ilmurinn af henni fyllti húsið. 250...
Húsfreyja er fallegt orð og þessi terta tileinkuð henni er látlaus, falleg og undurgóð. Þetta er gömul uppskrift sem er væntanlega til hjá mörgum fjölskyldum og til í mörgum útgáfum. Karmellukremið er þó alltaf ofan á enda ómótstæðilegt. Botnar: 4 egg...
Hér kemur uppskrift að einfaldri og fljótlegri súkkulaðiköku. Þessi uppskrift er upplögð fyrir byrjendur í bakstri. Ég hef með mælingu líka í desilítrum, litlir puttar hafa gaman að því að fylla þau og bæta í deighræruna. Kviss bang og kakan er tilbúin. 2...
Hver kannast ekki við söguna um sætabrauðsdrenginn. Þessar bollur hafa verið vinsælar í afmælum og gott að hafa brauðmeti á boðstólnum fyrir litlu krílin. 500 g hveiti 2 tsk þurrger 1 tsk. salt 1 msk. sykur 100 g smjör eða olía 3 ½ dl mjólk 1 egg nokkrar...
Hunang kanell og marsípan eru jólin hjá mér. Þessar undurfallegu kökur eru eins góðar eins og þær eru fallegar. Þær eru frekar einfaldar í framkvæmd því þeim er rúllað upp í pylsu og skornar niður í bita áður en þær eru bakaðar. Súkkulaði og mandla á...
Smákökur æsku minnar. Dásamlegt smjörbragð og minningar um að baka með mömmu, taka á móti lengjunum úr hakkavélinni og setja saman í kransa og setja á bökunarplötuna. Þetta eru jólin fyrir mér. 250 g hveiti 125 g flórsykur 100 g afhýddar möndlur, malaðar...
Súkkulaðikókoskökur eru uppskrift að jólasmákökum sem margir af eldri kynslóðinni muna eftir. Þær henta vel að gera með börnum því auðvelt er að móta kúlur úr deiginu og dýfa í möndlusykurinn. Uppskriftin er stór eða um 80 kökur. 80 stk. 400 g hveiti...
Ég var lengi búin að reyna að finna réttu samsetninguna af ljósri köku með súkkulaðikremi eins og er svo vinsæl í Ameríku. Kakan varð að vera góð og nógu fínlegt súkkulaðibragð af kreminu til að vera ekki yfirþyrmandi og ekki of mikið af því. Hér er hún...
Ég uppgvötaði þessa köku þegar ég var að gera þátt um amerískar köku og brauðuppskriftir fyrir Gestgjafann. Hún er uppáhald barnanna minna og oft beðið um hana í afmæli. Botnarnir eru ljósir og mjúkir og kremið er dásamlegt vanillukrem. Algjör dásemd...
17 júní er haldin hátíðlegur hér á bæ og þessi fallega jarðaberjakaka sómir sér vel á veisluborðinu. 4 egg 120 g sykur 100 g hveiti ½ tsk. lyftiduft 50 g smjör brætt og kælt lítillega Hitið ofninn í 180°C. Þeytið egg og sykur saman þar til blandan er...
Hér er uppskrift að fallegri tertu með heslihnetum og jarðaberjum. Talsverð fyrirhöfn er að rista heslihneturner og afhýða en trúið mér, það er fyllilega þess virði. Heslihnetur verða mun bragðmeiri og betri ef þær eru ristaðar. Botnar: 125 g heslihnetur...