Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Mamma elskaði að halda kökuboð. Hún átti margar frábærar uppskriftir að kökum og eyddi gjarnan góðum tíma í að skipuleggja, skoða uppskriftir og undirbúa kökuboðin. Þessi kaka er svolítið sérstök, ekki mjög sæt en eitthvað mjög fínlegt við bragðið.
150 g hveiti
150 g smjör, mjúkt
150 g sykur
½ - 1 tsk. kanill
1 egg
Hitið ofninn í 200°C (190°C á blástur). Hrærið hveiti, smjör, sykur og kanel saman. Bætið eggi í og hrærið allt vel saman. Setjið deigið á disk og fletjið það svolítið út í köku. Kælið í 30 mín. Teiknið 3x 22 cm hringi á bökunarpappír og setjið á bökunarplötur. Smyrjið þunnu lagi af deigi á hvern hring á pappírinn. Bakið kökurnar í 10-12 mín eða þar til þeir eru orðnir gullnir og girnilegir. Kælið botnana.
Fylling:
3 dl rjómi
100 g marsípan
1 dl apríkósumauk
5 þurrkaðar apríkósur í skraut
2 msk. flórsykur
Þeytið rjómann. Hnoðið marsípan í kúlu og fletjið síðan út í jafnstóran botn og kökurnar eru, gott er að strá flórsykri á borðið þegar þið fletjið út. Setjið kökuna saman þannig:
Setjið einn kökubotn á tertudisk. Smyrjið 1/3 af rjómanum ofan á. Setjið annan botn ofan á rjómann, þá apríkósumauk og 1/3 af rjómanum ofan á. Leggið nú marsípanhringinn ofan á og þá afganginn af rjómanum, síðast setjið þið kökubotn ofan á. Skerið apríkósurnar í mjóa bita og skreytið kökuna með þeim. Sigtið að síðustu flórsykur ofan á.