Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Ástarpungar voru oft bakaðir á mínu æskuheimili. Nokkur bakarí eru enn að baka þá en þeir eru misgóðir. Fljótlegt er að baka ástarpunga, mun fljótlegra að baka þá en kleinur. Hér þarf að passa að feitin sé passlega heit, ef hún er of heit verða ástarpungarnir hráir innan í og of dökkir að utan.
500 g hveiti
200 g sykur
3 tsk lyftiduft
1 egg
2 msk brætt smjör
3 dl mjólk
1 tsk. vanilludropar
2 dl rúsínur
Matarolía til að steikja upp úr
Setjið hveiti, sykur og lyftiduft í hrærivélarskál og hrærið vel saman. Bætið síðan eggi, bræddu smjöri, mjólk, vanilludropum og rúsínum út í og hrærið saman í samfellt deig.
Hitið olíuna í 190°C, gott er að nota stálpott. Það er ágætt ráð að athuga hvort olían er nógu heit að setja smá deig út í og ef freyðir vel í kringum það er það tilbúið. Passið að hafa olíuna ekki of heita þá dökkna ástarpungarnir of fljótt og verða hráir innan í, gott að lækka hitann svolítið þegar fyrstu pungarnir eru komnir í pottinn og reyna að halda hitanum stöðugum á olíunni, þetta kemur með æfingunni.
Setjið deigklumpa á stærð við valhnetu úr í olíuna, svona 5 -6 stk í einu og steikið þar til ástarpungarnir verða fallega brúnir, þeir þurfa u.þ.bl. 3 -4 mínútur.
Veiðið ástarpungana upp úr með gataspaða. Hafið fat með nokkrum blöðum af eldhúspappír undir við hliðina svo afgangs olía renni af. Ástarpungarnir eru bestir nýbakaðir en það er upplagt að frysta þá