Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Súkkulaðikókoskökur eru uppskrift að jólasmákökum sem margir af eldri kynslóðinni muna eftir. Þær henta vel að gera með börnum því auðvelt er að móta kúlur úr deiginu og dýfa í möndlusykurinn. Uppskriftin er stór eða um 80 kökur.
80 stk.
400 g hveiti
200 g kókosmjöl
400 g smjör
250 g sykur
1/2 tsk. hjartarsalt
2 msk. kakó
2 egg
Ofan á:
100 g möndlur eða hnetur
100 g sykurmolar
Hitið ofninn í 180°C. Setjið allt hráefni saman í skál og hrærið saman í jafnt deig. Setjið möndlur og molasykur í plastpoka og myljið með kökukefli. Hnoðið litlar kúlur úr deiginu, þrýstið á þær og dýfið þeim í möndlu- og sykurblönduna. Raðið á bökunarplötu og bakið í 12-14 mín. Kökurnar mega vera nokkuð þétt á plötunni en þær stækka þó aðeins.