750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Súkkulaði klessukaka

Súkkulaði klessukaka

Hér kemur uppskrift að einfaldri og fljótlegri súkkulaðiköku. Þessi uppskrift er upplögð fyrir byrjendur í bakstri. Ég hef með mælingu líka í desilítrum, litlir puttar hafa gaman að því að fylla þau og bæta í deighræruna. Kviss bang og kakan er tilbúin. 

 

2 egg

200 g sykur (2 ½ dl)

100 g smjör, brætt

55 g hveiti (1 dl)

4 msk. kakó

2 tsk. vanilludropar

 

Hitið ofninn á 175°C ( 170°C á blástur). Setjið egg og sykur í skál og þeytið vel saman, þetta er gott að gera í hrærivélaskál eða með rafmagnsþeytara. Bætið smjöri, og vanilludropum í og sigtið hveiti og kakó út í. Blandið öllu vel saman. Setjið bökunarpappír á botninn á 20-22 cm kökuformi. Hellið deiginu í formið og dreifið jafnt. Bakið kökuna í 15-20 mín. Hafið hana styttra ef þið viljið hafa hana mjög blauta en skemur ef þið viljið þurrari köku. Losið kökuna úr forminu og setjið á tertudisk. Berið fram mað þeyttum rjóma og ávöxtum.

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post