Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Sítrónukökur eru mitt uppáhald og nokkrar mjög góðar slíkar eru hér á blogginu. Þessa formköku geri ég þegar ég vil gleðja tengdadóttir mína, við deilum ást á sítrónum. Birkifræin fást í heilsubúðinni í Fjarðarkaupum. Þau eru ómissandi í kökuna og gera...
Þessa fallegu böku er svolítið vandasamt að baka og hún tekur svolítinn tíma. Ég er að kenna handbragðið á námskeiðum og bendi gjarnan á hversu mikil vinna er oft á því sem er gert frá grunni og eðlilegt að það sé verðlagt sanngjarnt. Ekki eru þó mörg...
Þeir sem þekkja mig vita að ég bjó nokkur á í París á mínum yngri árum. Þá var ég nýbúin með nám í matreiðslu og drakk í mig allt um franska matargerð og bakstur og hef verið með ástríðu fyrir henni allar götur síðan. Nú hef ég komið mér í það verkefni...
Ég man ekki hvenær ég fékk uppskriftina að þessari köku en mig minnir að þessi miði hafi verið í einhverri bók sem ég keypti á nytjamarkaði. Mér finnst miðinn með uppskriftinni sem ég set með neðst hérna á síðuna dásamlegur og minnir á horfna tíma þegar...
Þessi eftirréttur er á boðum flestra Frakka um jól og á sér sögu mjög langt aftur í tímann. Í desember fyllast bakarí og verslanir af allskonar tegundum af þessari köku. Sagan á bak við kökuna er að um jólaleytið voru gjarnan stórir eldiviðardrumbar settir...
Hér er uppskrift að köku sem ég hræri gjarnan í á sunnudegi þegar von er á gestum eða bara til að lýsa upp notarlegan sunnudag. Ég á gjarnan ber í frysti og því upplagt að nota þau. Ljúf og kósí kaka, góð með kaffi eða te. 120 g smjör, mjúkt 150 g sykur...
Brún lagterta er mitt uppáhald og ég baka hana fyrir hver jól. Talsverð vinna er að baka hana og vandasamt að fletja út botnana en þetta er nú bara einu sinni á ári og alveg þess virði að mínu mati. Uppskriftina fékk ég þegar ég vann á Te&Kaffi og þar...
Frönsk eplabaka er í boði á matseðli á næstum hverju kaffihúsi í París og einnig á fjölmörgum veitingastöðum. Frakkar elska eplabökur en mjög mismunandi er hvernig þær eru útfærðar. Einfaldasta útgáfan er bökubotn með ríkulega af eplum, smurð með apríkósugljáa...
Ég er veik fyrir bökum, sérstaklega sætum bökum. Ég hef eitt miklum tíma í að ná tökum á að fullkomna bökubotninn og er komin á það stig að finnast það leikur einn. Hér á blogginu undir "bökudeig" eru ítarlegar upplýsingar á því hvernig er best að gera...