Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Hver kannast ekki við söguna um sætabrauðsdrenginn. Þessar bollur hafa verið vinsælar í afmælum og gott að hafa brauðmeti á boðstólnum fyrir litlu krílin.
500 g hveiti
2 tsk þurrger
1 tsk. salt
1 msk. sykur
100 g smjör eða olía
3 ½ dl mjólk
1 egg
nokkrar rúsínur
samanpískað egg til að pensla með
sesamfræ og/eða birkifræ
Setjið hveiti í hrærivélaskál og stráið þurrgerinu, salti og sykri yfir, blandið þessu saman. Skerið smjörið í litla bita og myljið saman við hveitiblönduna, hellið olíunni út í þið ef þið viljið nota hana.
Hitið mjólkina í 37°C, það er líkamshiti og er gott að setja fingur í mjólkina til að athuga hvort hún er tilbúin, mjólkin má vera örlítið heitari í þetta skiptið því ef eggið er kalt þá jafnast hitinn. Aðalmálið er að vökvinn sé volgur (37°C) til að ger-gerlarnir fari að vinna. Pískið eggið með mjólkinni og hrærið saman með deigkrók í 5-8 mín.
Ef deigið hefur ekki náð að samlagast í bollu er gott að bæta smávegis af hveiti í en ekki fyrr en sá tími er liðinn, það tekur tíma fyrir glútenið í hveitinu að samlagast vökvanum, þetta er mikilvægt í allri brauðgerð. Látið deigið hefast í skálinni á hlýjum stað með klút yfir í 30-60 mín eða þar til það hefur tvöfaldast í stærð.
Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og skiptið deiginu í eina góða kúlu í höfuð og u.þ.bl. 12-14 minni í búkinn, á myndinni að ofan gerði ég 1 1/2 uppskrift til að fylla út í stóra ofnskúffu. Passið að hafa bil á milli því nú látið þið deigið hefast aftur undir klút í a.m.k. 30 mín og síðan stækka bollurnar við baksturinn.
Hitið ofninn í 220°C. Penslið bollurnar með eggi og setjið rúsínur til að gera brosandi andlit, stráið jafnvel birki eða sesamfræjum ofan á sumar. Bakið í 15 mín.