Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Sítrónukökur eru mitt uppáhald og nokkrar mjög góðar slíkar eru hér á blogginu. Þessa formköku geri ég þegar ég vil gleðja tengdadóttir mína, við deilum ást á sítrónum. Birkifræin fást í heilsubúðinni í Fjarðarkaupum. Þau eru ómissandi í kökuna og gera hana líka fallega.
180 g smjör, mjúkt
170 g sykur
220 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
3 egg, stór
2 msk. sítrónusafi
börkur af 2 sítrónum
2 msk. birkifræ
1 ¾ dl mjólk
Hitið ofninn í 180°C (170°C á blástur). Setjið bökunarpappír í jólakökuform sem er 25 cm langt.
Hrærið smjör og sykur þar til það er ljóst og kremkennt. Setjið öll þurrefnin í skál og setjið til hliðar. Bætið eggjum í smjörhræruna, einu í einu og hrærið vel saman. Bætið sítrónusafa, sítrónuberki, birkifræjum og mjólk út í og hrærið allt saman í samellt deig.
Jafnið deiginu í formið og bakið þetta í 50-55 mín. Látið kólna í 5-10 mín í forminu, losið kökuna úr því og setjið á tertudisk. Smyrjið glassúr ofan á í lokin. Kakan gefur 10 sneiðar
Glassúr:
120 g flórsykur, sigtaður
1 msk. sítrónusafi
1-2 msk. mjólk
Setjið flórsykur og sítrónusafa í skál. Bætið mjólk út í þar til þið fáið þykkan glassúr. Passið að setja mjólkina í smám saman svo þið fáið glassúrinn ekki of þunnann, ef það gerist er ráð að bæta meiri flórsykri út í.