Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Uppskriftin að þessari eplaköku kemur upprunalega frá Ragnheiði langömmu minni og amma mín, tengdadóttir hennar lærði að gera hana hjá henni. Eplakakan var fastur liður í jólahaldi á heimilinu og allir elskuðu þessa látlausu köku. Seinna fór amma að gera...
Mín fyrstu skref í bakstri voru að baka marmaraköku. Margir hafa stigið sín fyrstu skref í bakstri í skóla og bakað hana í matreiðslu. Ég gleymi aldrei þegar ég bakaði hana fyrst og hvað mér fannst hún falleg og líka góð. Skemmtilegast er að maður veit...
Ástarpungar voru oft bakaðir á mínu æskuheimili. Nokkur bakarí eru enn að baka þá en þeir eru misgóðir. Fljótlegt er að baka ástarpunga, mun fljótlegra að baka þá en kleinur. Hér þarf að passa að feitin sé passlega heit, ef hún er of heit verða ástarpungarnir...
Brún lagterta er mitt uppáhald og ég baka hana fyrir hver jól. Talsverð vinna er að baka hana og vandasamt að fletja út botnana en þetta er nú bara einu sinni á ári og alveg þess virði að mínu mati. Uppskriftina fékk ég þegar ég vann á Te&Kaffi og þar...
Mamma bakaði þessa lagtertu alltaf fyrir jólin. Hún bakaði aldrei klassíska lagtertu en ömmusystur mínar bökuðu hinsvegar mjög góða lagtertu. Mér fannst þessi lagterta alltaf ótrúlega góð og fannst jólin koma þegar ilmurinn af henni fyllti húsið. 250...
Þessa dagana er ég að skoða gamlar uppskriftabækur frá mömmu. Mér fannst þessar kökur alltaf svo fallegar. Múrsteinar voru einar af mínum uppáhalds smákökum og ég á minningar um að borða fyrst kökuna allan hringinn og marensin síðast, namm ! Heyrði síðan...
Hér kemur uppskrift að köku sem var mjög vinsæl hér áður fyrr. Þetta er mjög gömul uppskrift sem var þekkt á Norðurlandi en ekki eins þekkt hér fyrir sunnan. Gaman að velta því fyrir sér hvað matur og bakstur voru tengd landshlutum hér áður fyrr eins...
Gyðingakökur voru bakaðar fyrir jól á mörgum heimilum hér áður fyrr og eru enn vinsælar. Í Danmörku eru þær kallaðar "jödekeger" og væntanlega kom nafnið og uppskriftin að þessum fallegu kökum þaðan. Venjulega voru stungnar út kringlóttar kökur en gaman...
Kökurnar: 125 g smjör 250 g síróp 125 g sykur 1 egg 500 g hveiti 1 tsk. engifer 1 tsk. matarsódi 1 tsk. kanell Hitið smjör, síróp og sykur saman að suðu. Setjið blönduna í hrærivélaskál. Kælið blönduna svolítið svo eggið soðni ekki þegar það fer út í....