Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Ég man ekki hvenær ég fékk uppskriftina að þessari köku en mig minnir að þessi miði hafi verið í einhverri bók sem ég keypti á nytjamarkaði. Mér finnst miðinn með uppskriftinni sem ég set með neðst hérna á síðuna dásamlegur og minnir á horfna tíma þegar húsmæður lúrðu á uppskriftum og gáfu ekki frá sér. Á þeim tíma var ekki það aðgengi að upplýsingum sem við erum með í dag, uppskriftir gengu á milli manna og góðar uppskriftir voru gulls ígildi. Kakan er fín og er vinsæl hjá mér en sér í lagi hjá eldra fólkinu í fjölskyldunni, einhver nostralgía þar á ferð. Ég set gjarnan súkkulaði ofan á hana en ekki of mikið því döðlurnar verða að fá að njóta sín.
3 egg
200 g sykur
200 g döðlur
60 g möndlur
150 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 180°C. Skiljið egg í rauður og hvítur. Saxið döðlur og möndlur smátt og setjið í skál ásamt hveiti og lyftidufti. Þeytið eggjahvítur í tandurhreinni skál svo þær verði stífar, setjið í skál til hliðar.Þeytið eggjarauður og sykur vel saman. Blandið hveitiblöndunni saman við og síðast eggjahvítunum. Setjið bökunarpappír í lausbotna form 22-24 cm br. Hellið deiginu í formið og bakið kökuna í 30 mín.
Skreytt með rjóma og ávöxtum.