Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Ég er veik fyrir bökum, sérstaklega sætum bökum. Ég hef eitt miklum tíma í að ná tökum á að fullkomna bökubotninn og er komin á það stig að finnast það leikur einn. Hér á blogginu undir "bökudeig" eru ítarlegar upplýsingar á því hvernig er best að gera bökudeig. Hér er uppskrift að minni uppáhalds, franskri jarðaberjaböku.
Hér að neðan er uppskrift að vanillukremi sem er notað í hina ýmsu eftirrétti og kökur eins og triffli, franska jarðaberjaböku, krem í vatnsdeigskökur, í vínarbrauð og ótal margt fleira. Uppskrift gerir 640 g tilbúið krem en það er t.d. nóg til að setja í botninn á 22-24 cm bakaðri bökuskel og raða síðan annað hvort jarðaberjum eða öðrum ávöxtum ofan á.
Sætt Bökudeig:
180 g hveiti
3 msk. flórsykur eða sykur
100 g kalt smjör í bitum
3 msk. ískalt vatn
1 eggjarauða
Hitið ofninn í 180°C. Lagið deig eftir einhverri af þeim aðferðum sem útskýrt er annarstaðar á blogginu undir bökudeig. Kælið í 10 mín. Rúllið út svo passi í form 22-24 cm. Þið getið líka notað mörg lítil ef þið eigið þau. Forbakið bökuskelina í 10-15 mín eða þar til hún er gullin. Munið að pikka með gaffli í botninn svo hann lyfti sér ekki. Gott er að nota bökunarpappír með hrísgrjónum ofan á sem farg. Fjarlægið farg og pappír og bakið áfram í 10 mín eða þar til botninn er farinn að taka lit.
Vanillukrem:
4 ½ dl mjólk
½ vanillustöng, skorin eftir endilöngu
6 eggjarauður
120 g sykur
40 g maizenamjöl eða kartöflumjöl
2 msk. smjör
vanilludropar eftir smekk (smakkið til)
400-500 g jarðaber
2 msk. flórsykur
Setjið mjólk í pott og hitið að suðu, takið af hitanum. Skafið fræin úr vanillustönginni og setjið þau út í mjólkina ásamt stönginni sjálfri og látið bíða með lok á pottinum í 15 mín til að hún taki bragðið vel af vanillunni. Setjið eggjarauður, sykur og maizenamjöl í skál og þeytið saman í nokkran mínútur. Fjarlægið vanillustöngina og hellið mjólkinni út í eggjahræruna. Hellið þessu öllu aftur í pottinn og sjóðið á meðalhita þar til blandan er þykk. Takið af hitanum og bætið smjöri út í, smakkið til með vanilludropum. Hellið í skál, setjið plastfilmu á skálina þétt upp við kremið svo ekki komi skán á kremið og kælið í a.m.k. 2 klst. Setjið á botninn á fullbakaðri bökuskel og setjið jarðaber ofan á. Dustið yfir með flórsykri.
Ef þið viljið gljáa ofan á berin eða ávextina er hægt að hita apríkósumarmelaði með svolitlu vatni í pott og merja gegnum sigti eða mauka í matvinnsluvél. Pensla síðan ofan á með gljáanum.