750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Frönsk eplabaka - Tarte aux pommes frangipane

Frönsk eplabaka er í boði á matseðli á næstum hverju kaffihúsi í París og einnig á fjölmörgum veitingastöðum. Frakkar elska eplabökur en mjög mismunandi er hvernig þær eru útfærðar. Einfaldasta útgáfan er bökubotn með ríkulega af eplum, smurð með apríkósugljáa önnur er bökubotn, eplamauk, epli og gljái ofan á og síðan er sú fræga tarte Tatin. Þessar uppskriftir eru hér annar staðar á blogginu. 

Hér er uppskrift að eplaböku með möndlukremi, sem er kallað “fragipane” á frönsku.

Bakan er hér bökuð á ofnplötu til að fá fallegt sveitalegt útlit. Þessi útgáfa er með mikið af eplum og apríkósugljáa ofan á. Í kaflanum hér á blogginu um bökur er farið vel yfir hvernig er best að gera góða bökuskel. Það er gaman að kunna þá list og skilar sér í að njóta þessarar undurfallegu og gómsætu böku.

Frönsk eplabaka - Tarte aux pommes frangipane

Bökudeig:

180 g hveiti

2 msk. flórsykur

100 g kalt smjör í bitum

3 msk.  ískalt vatn

1 eggjarauða

 

Aðferð: sjá bökuskel annarstaðar á blogginu

Byrjið á að gera bökudeigið og látið það hvíla í ísskáp í 15-20 mín. Gerið síðan möndludeigið og setjið til hliðar. Hitið ofninn í 180°C.

Rúllið deigið út á hveitistráðu borði u.þ.bl. 35 cm í þvermál. Setjið á ofnplötu með bökunarpappír undir. 

Jafnið möndludeiginu á deigið en skiljið 6 cm eftir allan hringinn. Afhýðið eplin, skerið þau í tvennt og síðan í þunnar sneiðar. Raðið eplum fallega ofan á, þannig að sneiðarnar séu ofan á hver annari, byrjið í ysta hring og vinnið inn að miðjunni.  Raðið þétt. Brettið deigið inn að miðjunni og látið koma ofan á eplin. Bakið bökuna í 30-35 mín. Penslið eplin með bræddu smjöri þegar þau hafa bakast í 5 mín. af bökunartímanum. Hitið apríkósusultuna með 2 msk. af vatni svo hún verði þynnri og penslið kökuna með henni. Voila! Ekta frönsk eplakaka. Berið fullfeitan sýrðan rjóma eða þeyttan rjóma fram með henni. 

Möndludeig – Fragipane:

100 g smjör, mjúkt

70 g sykur

2 egg, stór (65-70 g)

100 g möndlur malaðar

1 tsk. vanilludropar

Hrærið smjör og sykur í hrærivél eða með þeytara þar til það er ljóst og kremkennt. Stoppið vélina og notið sleikju til að skafa niður með hliðunum  annars lagið svo allt blandist nú vel.  Bætið eggjum út í einu í einu og hrærið vel saman við. Bætið möndlum og vanilludropum í og hrærið saman. 

Eplafylling:

2 stór epli, gjarnan Granny Smith (eða sem nemur vigt 300 g)

40 g smjör, brætt

4 msk. apríkósusulta

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post