750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Frönsk valhnetubaka með sveskjum og koníaki

Þeir sem þekkja mig vita að ég bjó nokkur á í París á mínum yngri árum. Þá var ég nýbúin með nám í matreiðslu og drakk í mig allt um franska matargerð og bakstur og hef verið með ástríðu fyrir henni allar götur síðan. Nú hef ég komið mér í það verkefni að gera upp lítið hús í þorpi í Suður-Frakklandi í héraði sem er þekkt m.a. fyrir armaníak, koníak, valhnetur og sveskjur. Hér er uppskrift að böku sem er frá Gascogne-héraði sem er rétt sunnan við þorpið sem ég bý í. Þar hella menn armaníaki yfir kökuna, það má nota það ef þið fáið það.

Frönsk valhnetubaka með sveskjum og koníaki

300 g sveskjur án steina

½ sítróna, safi af

 

Byrjið á því að setja sveskjur í skál og hellið heitu vatni og sítrónusafa svo fljóti yfir.

 

Bökudeig:

180 g hveiti

2 msk. flórsykur

100 g kalt smjör í bitum

3 msk.  ískalt vatn

1 eggjarauða

 

Útbúið bökuskelina. Sigtið hveitið  á borðið, bætið sykri í og saxið smjörið saman við með hníf. Gerið laut í hveitið og  setjið vatn og eggjarauðu þar í og hnoðið saman þar til vel samlagað (þetta má líka gera í skál). Pakkið deiginu í plastfilmu og geymið í ísskáp í 15 mín. Einnig má laga deigið í matvinnsluvél. Þá er allt nema vatn sett í vélina stillt á mesta hraða í ½ -1 mín, vatni bætt í og hrært saman aðra mín eða þar til deigið er vel samlagað. Þið getið notað aðra aðferð við að gera bökuskelina. Sjá bökudeig hér annarstaðar á blogginu. Geymið deigið 15 mín í ísskáp.

Fletjið deigið út á hveitistráðu borði svo passi í 25 cm bökuform upp með börmum. Setjið deigið í formið, geymið í ísskáp.

 

Fylling:

180 g smjör, mjúkt

180 g flórsykur

1 appelsína, fínt rifinn börkur af henni

3 egg, meðalstór

½ tsk. kanel

60 g hveiti

180 g valhnetur, malaðar

¾ dl koníak, hellt yfir í lokin

 

Hitið ofninn í 200°C (180°c  blástur). Hellið sveskjunum í sigti og látið drjúpa af þeim. Hrærið smjör, flórsykur og appelsínubörk vel saman. Bætið eggjum í einu í einu og hrærið vel. Bætið hveiti, kanel og valhnetum út í og blandið vel. Setjið fyllinguna í bökubotninn og raðið sveskjunum ofan á. Bakið bökuna í 35-40 mínútur. Hellið koníakinu ofan á kökuna. Sigtið flórsykur ofan á. Best nýbökuð með þeyttum rjóma.

Frönsk valhnetubaka með sveskjum og koníaki
Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post