Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Þessi eftirréttur er á boðum flestra Frakka um jól og á sér sögu mjög langt aftur í tímann. Í desember fyllast bakarí og verslanir af allskonar tegundum af þessari köku. Sagan á bak við kökuna er að um jólaleytið voru gjarnan stórir eldiviðardrumbar settir í eldstæðin í húsum í sveitum Frakklands svo yrði hlýtt í húsunum og á jóladag var stærsti kubburinn valinn svo öllum yrði hlýtt. Kakan er í laginu eins og eldiviðardrumbur og er vísun í þennan jóladrumb. Kakan er fyrir 6-8.
Kakan:
4 eggjahvítur
4 eggjarauður
100 g sykur
1 egg
1 tsk. vanilludropar
80 g hveiti
Stillið ofninn á 180°C. Fóðrið form, 30x35 cm með bökunarpappír og smyrjið með olíu.
Byrjið á því að þeyta eggjahvítur stífar, setjið í skál. Þeytið saman eggjarauður og sykur(óþarfi að þvo skálina) þar til blandan er létt og ljós. Bætið heilu eggi og vanilludropum út í og hrærið áfram í 3-4 mín.
Sigtið hveitið og blandið út í. Bætið að síðustu stífþeyttum eggjahvítum út í og blandið varlega með sleikju.
Hellið deiginu í formið og bakið í 12-15 mín. Hvolfið kökunni á bökunarpappír sem búið er að strá sykri á og rúllið henni upp og setjið til hliðar meðan þið lagið kremið.
Smyrjið kaffikremi á botninn á kökunni og rúllið henni upp. Skerið kökuna í tvennt á ská svo þið getið látið hana líta út eins og klofinn trjábol. setjið á stóran tertudisk eða tréplatta. Smyrjið súkkulaðikreminu á kökuna og notið gaffal til að gera rendur. Skreytið með rauðum kúlum. Fallegt er að setja greni í kringum hana.
Franskt smjörkrem:
¾ dl vatn
100 g sykur
3 eggjarauður
250 g smjör, mjúkt
2 tsk. skyndikaffiduft leyst upp í 2 tsk. sjóðandi vatni
100 g súkkulaði, brætt við vægan hita
Sjóðið vatn og sykur saman í potti í 7-8 mín. Þeytið eggjarauður saman og hellið sykurvatninu saman við í mjórri bunu.
Þeytið eggjamassann áfram þar til hann er nær kaldur. Bætið þá mjúku smjörinu saman við, smátt og smátt og hrærið vel á meðan.
Skiptið kreminu í tvo hluta og bætið kaffi í aðra og bræddu súkkulaði í hina.