750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Hindberjakaka

Hér er uppskrift að köku sem ég hræri gjarnan í á sunnudegi þegar von er á gestum eða bara til að lýsa upp notarlegan sunnudag. Ég á gjarnan ber í frysti og því upplagt að nota þau. Ljúf og kósí kaka, góð með kaffi eða te. 

Hindberjakaka

120 g smjör, mjúkt

150 g sykur

2 stór egg

170 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

¼ tsk. matarsódi

120 ml sýrður rjómi (1.2 dl)

1 tsk. vanilludropar

¼ tsk. möndludropar

 

180 g hindber, fersk eða frosin, ekki afþýða ef notuð frosin

50 g möndluflögur eða saxaðar möndlur

 

Hitið ofninn í 180C (175°C á blástur). Setjið bökunarpappír í botninn á 24 cm smelluformi. Hrærið saman smjör og sykur þar til vel samlagað. Bætið eggjum út í einu í einu og hrærið vel. Setjið hveiti, lyftiduft, matarsóda og kanel saman í skál og blandið vel saman. Bætið þessu út í smjörhræruna ásamt sýrðum rjóma og báðum tegundum af dropum. Passið magnið af möndludropum, það á bara að vera örlítið, of mikið af þeim er ekki gott. Jafnið deiginu í formið. Stráið berjum ofan á, dreifið síðan myljunni ofan á berin og síðast möndluflögunum. Bakið kökuna í 35-40 mín. Gott að bera þeyttan rjóma fram mað kökunni. 

 

Mylja ofan á:

30 g hveiti

50 g púðursykur

¼ tsk. kanell

¼ tsk salt

2 msk. smjör, brætt

 

Setjið allt nema smjörið á disk og blandið saman. Hellið smjöri út í og stappið saman við þangað til þið fáið blönduna þannig að þið getið mulið hana yfir, ef hún verður of blaut er ráð að bæta örlitlu hveiti saman við svo hún verði þurrari.

 

Hindberjakaka
Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post