Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Brún lagterta er mitt uppáhald og ég baka hana fyrir hver jól. Talsverð vinna er að baka hana og vandasamt að fletja út botnana en þetta er nú bara einu sinni á ári og alveg þess virði að mínu mati. Uppskriftina fékk ég þegar ég vann á Te&Kaffi og þar var hún í boði á kaffihúsinu fyrir jólin. Mér finnst bragðið af þessari dásamlegu köku vera hið sanna jólabragð.
750 g hveiti
3 tsk. negull
4 tsk. kanill
3 tsk. matarsódi
450 g smjör, mjúkt
450 g púðursykur
3 egg
Setjið hveiti, krydd og matarsóda í skál og blandið saman. Hrærið smjör og púðursykur saman þar til létt og kremkennt. Bætið eggjum út í einu í einu og hrærið vel saman. Gott er að nota hrærarann á hrærivélinni í þetta. Bætið nú hveitiblöndunni út í og hnoðið saman í samfellt deig. Fletjið létt út í kringlótta köku og setjið í plastfilmu eða annað sem hugnast yfir. Kælið í 30 mín.
Skiptið deiginu niður í 4 parta, það verða um það bil 450 g í hverjum. Fletjið þunnt úr svo hver partur þeki ofnplötu. Hafið bökunarpappír undir. Þetta er svolítill vandi en takið ykkur bara tíma í þetta. Ef þið eigið 2 ofnplötur þá gerið þið bara 2 í einu. Það er ágætt að hafa bökunarpappír yfir deiginu líka þegar flatt er út, það gerir vinnuna við að fletja út auðveldari. Hitið ofninn í 175°C (170°C á blástur). Bakið hverja köku í 8 mín eða þar til dásamlegur ilmur fyllir eldhúsið og kakan örlítið farin að dökkna í hliðunum. Hrærið kremið saman í hrærivél og leggið botnana saman með því þegar þeir hafa kólnað. Leggið rakan klút yfir kökuna og geymið þannig yfir nótt. Skiptið niður í passlega bita og pakkið í frystinn.
Krem:
400 g smjör, mjúkt
400 g flórsykur
1 ½ egg
1 tsk. vanilludropar
Allt hrært mjög vel saman, gott að nota hrærivél.