Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Þessa dagana er ég að skoða gamlar uppskriftabækur frá mömmu. Mér fannst þessar kökur alltaf svo fallegar. Múrsteinar voru einar af mínum uppáhalds smákökum og ég á minningar um að borða fyrst kökuna allan hringinn og marensin síðast, namm ! Heyrði síðan af einni jafnöldru sem komst í kökudunkinn þegar hún var barn og át marensinn ofan af. Matur kallar oft fram skemmtilegar minningar.
250 g hveiti
½ tsk. hjartarsalt (má sleppa en það gerir kökurnar stökkar)
125 gr sykur
190 g smjör, kalt í teningum
1 eggjarauða
Setjið hveiti, hjartarsalt og sykur á borð eða í stóra skál. Myljið smjörið saman við með höndum eða í hrærivél þar til það er vel samlagað. Bætið eggjarauðu út í og hnoðið vel saman. Pakkið inn og geymið í kæliskáp í 30 mínútur. Hitið ofninn í 180°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu. Hrærið marensinn saman og setjið í sprautupoka ef þið eigið hann. Skiptið deiginu í 4 hluta. Fletjið út einn hlut í einu með rúllukefli og stingið út litlar kökur ca. 5 cm í þvermál. Setjið marensdoppu á hverja köku annað hvort með sprautupoka eða tveim teskeiðum. Sáldrið svolitlu af möndlum og sykri ofan á hverja köku. Geymið afskurðinn og setjið saman síðast í eina deigkúlu síðast. Bakið kökurnar í 8-9 mín eða þar til þær eru gullnar og girnilegar. Úr uppskriftinni fást 60 kökur.
Marens:
2 eggjahvítur
250 g flórsykur
Hrærið eggjahvítur og flórsykur saman í tandurhreinni skál þar til blandan er hvít og fallega stíf.
Ofan á:
50 gr. möndlur, saxaðar
10 sykurmolar malaðir gróft eða perlusykur