750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Vatnsdeigsbollur með “craquline” stökkum topp

Frakkar halda mikið upp á vatnsdeigið sem við hér heima notum í bolludagsbollur. Þeir gera allskyns flottar kökur og eftirrétti úr deiginu og leika með það á ýmsa vegu m.a. með því að setja stökkan topp ofan á það. Þeir kalla þessar bollur "Choux craquelin" Hér er uppskrift að þessum gómsætu bollum. Athugið að hér eru eggin gefin upp í grömmum því þetta deig er viðkvæmt fyrir hlutföllum og of mikið af eggjum gerir það þunnt og þá lyftast bollurnar ekki. Hver hefur ekki lent í því ! Þetta á þó helst við þegar uppskriftin er margfölduð eins og margir gera fyrir bolludaginn, þá er gott að vita að eitt egg er rétt rúm 45 g án skurnar en getur hæglega vigtað 60-70 g.

Vatnsdeigsbollur með “craquline” stökkum topp

170 ml mjólk (1 ¾ dl)

70 g smjör

1 ½ tsk. sykur

½ tsk. salt

100 g hveiti

3 egg (sláið saman og vigtið 140 g án skurnar)

Hitið ofninn í 180°C. Setjið mjólk, smjör, sykur og salt í pott ásamt og sjóðið þar til smjörið er bráðið. Setjið hveiti í pottinn og sláið það saman við með sleif þar til það er samfellt og losnar frá botninum. Látið bíða í 5 mínútur og hrærið í til að kæla. Þið getið líka sett deigið í hrærivélaskál og klárað deigið þar, þá er gott er að láta pískinn ganga nokkra hringi til að kæla deigið. Ef deigið er of heitt geta eggin soðnað og gera þá ekki gagn til að lyfta deiginu. 

Bætið nú eggjum út í í 3 skömmtum og sláið vel saman við. Deigið virðist stundum vera að skilja sig en það er eðlilegt, bara halda áfram að hræra og það samlagast fljótt. Setjið deigið í sprautupoka. Sprautið deigið úr í bollur u.þ.b. 8-10 stk. Má líka nota tvær matskeiðar. Stingið kringlóttar kökur út úr „craquelin“ deiginu og leggið ofan á hverja köku. Bakið í 30 mín. A.T.H. ekki opna ofninn fyrstu 20 mínúturnar, kökurnar geta fallið. Takið kökurnar út þegar þær eru tilbúinar og kælið.

Vatnsdeigsbollur með “craquline” stökkum topp

Craquelin deig:

60 g smjör, mjúkt

80 g hveiti

80 g hrásykur

Setjið allt í skál og myljið saman með höndum. Formið bollu og látið í kæli í 15 mín. Notið 2 arkir af smjörpappír, setjið deigið á milli og fletjið þunnt út. Stingið út kökur og setjið ofan á vatnsdeigsbollurnar. Bakið síðan eins og sagt er hér að ofan.

Kælið bollurnar og setjið rjóma og sultu á milli annað spennandi.

Vatnsdeigsbollur með “craquline” stökkum topp

Frakkar halda mikið upp á vatnsdeigið sem við hér heima notum í bolludagsbollur. Þeir gera allskyns flottar kökur og eftirrétti úr deiginu og leika með það á ýmsa vegu m.a. með því að setja stökkan topp ofan á það. Þeir kalla þessar bollur "Choux craquelin" Hér er uppskrift að þessum gómsætu bollum. Athugið að hér eru eggin gefin upp í grömmum því þetta deig er viðkvæmt fyrir hlutföllum og of mikið af eggjum gerir það þunnt og þá lyftast bollurnar ekki. Hver hefur ekki lent í því ! Þetta á þó helst við þegar uppskriftin er margfölduð eins og margir gera fyrir bolludaginn, þá er gott að vita að eitt egg er rétt rúm 45 g án skurnar en getur hæglega vigtað 60-70 g.

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post