Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Mín fyrstu skref í bakstri voru að baka marmaraköku. Margir hafa stigið sín fyrstu skref í bakstri í skóla og bakað hana í matreiðslu. Ég gleymi aldrei þegar ég bakaði hana fyrst og hvað mér fannst hún falleg og líka góð. Skemmtilegast er að maður veit aldrei hvernig munstrið með súkkulaðibragðinu kemur út. Kakan er líka þekkt í öðrum löndum t.d. á Norðurlöndunum. Í Frakklandi er hún kölluð því flotta nafni “gáteau de tigré” eða tígriskakan. Hér kemur ein útfærsla í fínni kantinum af þessari vinsælu köku en hér er súkkulaðiparturinn hafður meiriparturinn..
200 g smjör mjúkt
200 g sykur
3 egg (meðalstór)
1 tsk vanilludropar
200 g hveiti
1 tsk lyftiduft
4 msk. kakó
2-3 msk. mjólk
Hitið ofninn í 175°C (170°C á blástur). Hrærið saman smjör og sykur þar til það er létt og kremkennt. Bætið eggjum út í einu í einu, ásamt vanilludropum og hrærið allt vel saman.
Sigtið hveiti og lyftiduft saman og hrærið saman við smjörblönduna.
Takið 1/3 hluta frá af deiginu og leggið til hliðar. Sigtið kakó út í það sem eftir er af deiginu. Hrærið saman og vætið í með mjólkinni.
Smyrjið eða klæðið 25 cm formkökuform með pökunarpappír. Setjið helminginn af ljósa deiginu á botninn á forminu, setið dökka deigið í ofan á og afganginn af ljósa deiginu efst. Takið prjón og hrærið aðeins í deiginu með honum. Bakið kökuna í 50-60 mínútur. Kælið aðeins og losið síðan varlega úr forminu. Alltaf spennandi að skera hana og sjá hvernig munstrið kemur út.