Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Uppskriftin að þessari eplaköku kemur upprunalega frá Ragnheiði langömmu minni og amma mín, tengdadóttir hennar lærði að gera hana hjá henni. Eplakakan var fastur liður í jólahaldi á heimilinu og allir elskuðu þessa látlausu köku. Seinna fór amma að gera heimatilbúin ís og þá var hann oft tekið fram yfir eplakökuna, sérstaklega af yngra fólkinu. Amma gerði samt alltaf þessa köku, henni fannst ekki jólin koma án hennar. Hún setti hana í djúpt form en ég hef oft sett hana upp eins og tertu og ég bæti ristuðum möndluflögum ofan á, kakan er mjög sparileg þannig.
140 g tvíbökur
60 g sykur
60 g smjör
2 dl berjasulta
½ dl möndluflögur ristaðar á pönnu
2-3 msk berjamauk í skraut
Myljið tvíbökurnar í poka með kökukefli eða í matvinnsluvél. Blandið sykrinum saman við. Bræðið smjörið og steikið blönduna á pönnu þar til allt er brúnað. Hrærið í allan tímann svo blandan brenni ekki, þetta tekur a.m.k. 10 mínútur. Kælið.
Kakan sett saman.
Setjið hring af smelluformi (ég nota 18 cm gjörð af smelluformi) á fallegan tertudisk, ekki nota botninn á smelluforminu bara hringinn. Skiptið tvíbökumylsnunni í 3 hluta. Setjið lagskipt eplamauk og tvíbökur í formið tvisvar, byrjið á tvíbökublöndunni. Setjið berjasultu ofan á eplamaukið á milli laga. Látið kökuna standa í a.m.k. 1 klst. Takið hringinn varlega utan af, skreytið diskinn með rjómatoppum og berjamauki og berið fram með ísköldum rjóma. Kakan dugar fyrir 8-10.
Vanillu- eplamauk
3 stór epli
¾ dl vatn
1 dl sykur
1 vanillustöng, klofin og fræ skafin innan úr
2 msk. sítrónusafi
Flysjið og kjarnhreinsið eplin, skerið þau í litla bita. Setjið eplin í pott með vatni og sykri. Skrapið kornin úr vanillustönginni og setjið í pottinn ásamt stönginni. Sjóðið eplin í lokuðum potti í a.m.k. 20 mín eða þar til þau eru mjúk. Hrærið í annars lagið. Stappið eplin saman í mauk ef þarf. Kælið.