750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Vínarterta

Vínarterta er líklega sú kaka sem myndi vinna keppnina sem kaka íslandssögunnar. Þetta er kakan sem langamma bakaði í hlóðaofninum sínum, einn botn í einu og sauð sveskjumauk til að setja á milli. Ömmusystur mínar gerðu mjög góða vínartertu og hún var oft á borðum hjá þeim, þær báru gjarnan rjóma fram með henni.  Íslendingar sem fluttu til Canada um aldamótin 1900 tóku uppskriftina að þessari köku með sér þegar þeir námu land í Canada, í dag er þetta aðalkakan þar a.m.k. í Winnepeg.

Vínarterta

240 g smjör, mjúkt

220 g sykur

2 egg

1 tsk. vanilludropar

520 g hveiti

1 ½ tsk. lyftiduft

½ dl mjólk

10 kardimommur, hýði tekið utan af og fræin steytt

 

Hrærið smjör og sykur saman þar til ljóst og kremkennt. Bætið eggjum og vanilludropum í og hrærið vel saman. Gott að setja eitt egg í einu og skafa með sleikju meðfram svo allt blandist vel saman. Sigtið hveiti og lyftiduft saman og bætið í ásamt mjólkinni. Hnoðið saman í samfellt deig.

Kælið deigið í ísskáp í 30 mín.

 

Hitið ofninn í 180°C (170°C á blástur)

Vigtið deigið og skiptið í 6 eða 7 hluta eftir því hvað þið viljið hafa mörg lög. Hér áður var kakan alltaf í 7 lögum. Notið örk af bökunarpappír til að fletja úr á og fletjið hvern deighluta út í 22-23 cm hring. Gott er að sáldra svolitlu hveiti á keflið og deigið svo vel gangi. Notið form eða disk og skerið utan af svo hver deigkaka verði nákvæmlega hringur. Hvolfið deigkökunum hverri fyrir sig á bút af bökunarpappír og setjið á bökunarplötu. Þið getið bakar tvær í einu ef þið eruð með blástursofn. Bökunartími er u.þ.bl. 12 mínútur, kökurnar eiga að vera ljósbrúnar og aðeins dekkri á jöðrunum. Kælið botnana og leggið síðan saman með sveskjumauki eða rabarbarasultu, þið þurfið 3 vel fullar matskeiðar á hvern botn. Kakan er best ef hún fær að standa í sólarhring vel pökkuð inn. Gott er að bera þeyttann rjóma með, hér áður fyrr var gjarnan sett lag af þeyttum rjóma ofan á kökuna.   

 

Sveskjumauk:

500 g þurrkaðar sveskjur

3 dl vatn

100 g sykur (eða eftir smekk)

¾ tsk. kanell

Sjóðið sveskjur í vatni í 15-20 mín eða þar til þær eru mjúkar. Maukið þær ásamt vatninu í matvinnsluvél ásamt sykri og kanil. Smakkið til með hvorutveggja, kannski má setja örlítið meira.

 

 

Vínarterta
Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post