750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Creme brûlée baka

Endalaust er hægt að leika sér með fyllingar í franskar bökur. Hér er ein sem er fyrir þá sem elska franska eftirréttinn Creme brulée. Annarstaðar á blogginu er þáttur sem heitir "bökur" þar er farið í hvernig er best að ná tökum á því að gera fullkomnar bökuskeljar. Síðan er námskeið í Salt Eldhúsi sem kenndar eru helstu aðferðir. 

Creme brûlée baka

Sæt Bökuskel:

180 g hveiti

3 msk. sykur eða flórsykur

100 g ískalt smjör í litlu bitum eins og teningar

1 eggjarauða

3 msk.  ískalt vatn

 

Hitið ofninn í 180°C. Setjið hveitið og sykur í skál, myljið smjörið saman við þar til smjörið er eins og smáar baunir. Ef smjörið er of mikið malað saman við hveitið verður bökuskelin ekki stökk og krassandi. Pískið eggjarauðu og vatn saman. Gerið laut í hveitið og  setjið eggjablönduna þar í og hnoðið létt saman þar til deigið er samlagað. Pakkið deiginu í bökunarpappír eða plastfilmu og geymið í ísskáp í 15 mín.

# Sjá annar staðar á blogginu fleiri aðferðir við að gera góða bökuskel.

 

Fylling:

4 dl rjómi

1 dl mjólk

½ dl Amaretto-líkjör, má sleppa eða nota annan líkjör.

1 vanillustöng

5 eggjarauður

50 g sykur

 

100 g kirsuberjasulta eða önnur góð

50 g möndluflögur, þurrristaðar á pönnu

3 msk. sykur

 

Setjið rjóma, mjólk, amaretto og kornin af vanillunni í pott, hitið að suðu, látið bíða, með lok á pottinum.

Setjið eggjarauður og sykur í skál og pískið létt saman. Hellið rjómablöndunni út í og blandið vel.

Hitið ofninn í 180°C á blástur. Deigið passar í 1x23 cm form. Rúllið deigið út á hveitistráðu borði og setjið í form, munið að losa deigið reglulega frá borðinu með því að snúa, setjið deigið í bökuform. Setjið bökunarpappír og farg t.d. þurrar baunir t.d. kjúklingabaunir, á pappírinn ( sem má nota aftur og aftur) og forbakið bökuskelina í 10-15 mín. Þetta kallast “blind baking” á ensku. Pappírinn og fargið er haft ofan á til að botninn lyfti sér ekki og fyllinginn komist fyrir.

Takið bökuna út úr ofninum og fjarlægið pappír og baunir. Jafnið sultunni á botninn og hellið síðan fyllingunni í formið ofan á, bakið áfram í 45 mín. Látið bíða í forminu í 15 mín og losið síðan varlega. Stráið 3 msk. sykri ofan á og brennið sykurinn með brennara. Stráið ristuðum möndluflögum ofan +a. Bakan er best þann dag sem hún er böku’.

 

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post