Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Ítalska triflið er kannski meira eftirréttur en eiginleg kaka en ég verð að hafa það með því það er búin að vera með okkur svo lengi. Sítrónubörkurinn með vanillu, sjerrí og möndlum gefur ítalska tóninn og ég hef alltaf verið mjög veik fyrir þessari samsetningu. Þessi eftirréttur er meira fyrir fullorðna og eiginlega ekki barnvænn. Ég útbý ítalska triflið gjarnan þegar ég vil dekra við manninn minn. Okkur finnst gaman að eiga eitthvað gómsætt í eftirrétt yfir helgi, (þegar við eigum það skilið) við erum ekki nammigrísir en mikið fyrir eftirrétti og kökur og elskum þetta triffli.
Kökubotn:
3 egg
110 g sykur
110 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 180°C (175°C blástur) Setjið bökunarpappír í 22 cm smelluform og berið olíu innan á hliðarnar.
Þeytið egg og sykur saman þar til létt og ljóst. Sigtið hveiti og lyftiduft saman og bætið út í eggin, blandið varlega saman með sleikju. Hellið í formið og bakið í 20 mín. Kælið stutta stund og losið síðan varlega úr forminu.
Vanillukrem:
4 dl mjólk
4 eggjarauður
70 g sykur
½ tsk. salt
1 tsk. vanilludropar (má vera meira smakkið til)
rifinn börkur af ½ sítrónu
Setjið mjólk í pott og hitið að suðu. Hafið skál tilbúna til að hella kreminu í í lokin. Pískið eggjarauður og sykur saman í rúmgóðri skál (sem rúmar síðan mjólkina). Hellið mjólkinni í eggjablönduna og hrærið þessu saman, hellið síðan blöndunni aftur í pottinn og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og hrærið stöðugt í þar til þykknar, hellið þá strax í skálina. Passið að láta kremið ekki sjóða áfram þegar það hefur þykknað, þá skilur blandan sig og fer drafla, þessvegna er gott að hafa tóma skál tilbúna á borðinu. Bætið vanilludropum og sítrónuberki út í. Setjið kremið í kæli og látið kólna.
Samsetning:
3 msk. masalavín, madeira, sjerrí eða annað svipað styrkt vín
3 dl rjómi
70 g möndluflögur
Gott er að nota víða skál sem er a.m.k. 5 cm djúp. Tætið kökubotninn niður og setjið eitt lag óreglulega í skálina. Dreypið víninu jafnt yfir. Hellið vanillusósunni yfir. Þeytið rjómann og jafnið honum yfir, ég nota stundum sprautupoka og sprauta rjómanum í munstur yfir, smá gamaldags. Ristið möndluflögur og sáldrið ofan á. Kakan er góð í 3 daga. Hentar ekki að frysta nema bara kökubotninn sér.