Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Sítrónur eru í uppáhaldi hjá mér og þá sérstaklega köldu vetrarmánuðina. Þessi dásamlega sítrónukaka er fljótleg og frískandi. Hún er mjög góð með tesopa en líka bara frábær hvunndagskaka við allskonar tilefni. Mér finnst svo frábært og mikil tilbreyting að nota ólífuolíu í köku í staðin fyrir að nota smjör, hún verður svo mjúk og góð.
180 g hveiti
2 tsk. lyftuduft
½ tsk. salt
200 g sykur
3 stór egg
2 tsk. appelsínubörkur
2 tsk. sítrónubörkur
60 ml (rúmur ½ dl) mjólk
170 ml (1 ¾ dl) ólífuolía
Stillið ofninn á 180°C (170°C blástur). Setjið hveiti, lyftiduft og salt í skál og blandið saman. Hrærið egg og sykur saman þar til létt og ljóst. Bætið báðum tegundum af berki, mjólk og ólífuolíu út í og hrærið 1-2 mín. Bætið hveiti út í og hrærið saman í 1-2 mín. Setjið pappír á botninn á 22-24 cm smelluformi og jafnið deiginu í formið. Bakið í 30-35 mín. Ef þið leggið fingurna laust ofan á miðjuna á kökunni og þið finnið að hún er stíf þá er hún bökuð. Kælið kökuna í 5 mín og takið hana síðan úr forminu og setjið á kökudisk. Kælið áfram og dreifið síðan glassúr ofan á, rífið svolítið af sítrónubörk ofan á kökuna.
Glassúr:
150 g flósykur
sítrónusafi eftir þörfum (u.þ.bl. 1 sítróna)
½ tsk. rifin börkur af sítrónu
Sigtið flórsykur í skál. Notið písk og hellið sítrónusafa út í þar til þið fáið þykkan glassúr.