Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Hér er kaka úr upskriftabók mömmu. Þessi rúlluterta var oft í saumaklúbbnum og þótti mjög frískandi og góð. Nú er aftur farið að framleiða feitan sýrðan rjóma sem er svo yndislega góður í bakstur og sem meðlæti með köku í staðin fyrir þeyttan rjóma.
Kakan:
3 egg
125 g sykur
75 g kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
50 g hnetur eða möndlur saxaðar, frekar gróft
Fylling:
1 dós sýrður rjómi, 36 %
1 dós niðursoðnar apríkósur
Hitið ofninn í 230°C. Þeytið egg og sykur mjög vel saman eða þar til massinn er léttur og loftkenndur. Bætið kartöflumjöli, lyftidufti og vanilludropum út í og blandið varlega saman með sleikju. Setjið bökunarpappír í rúllutertuform eða annað bökunarform, það þarf að vera minnst 24cm x 36cm. Lítið mál er að útbúa form úr bökunarpappír og hefta saman á hliðum eins og sýnt er á mynd hér neðst á blogginu. Hellið deiginu í formið og stráið hnetum eða möndlum yfir deigið. Bakið í 6-8 mín. hvolfið strax á smjörpappír og rúllið kökunni upp í pylsu ef þið ætlið að geyma að setja fyllinguna á hana. Sigtið safann frá apríkósunum í skál, rúllið botninum út og vætið aðeins í honum með safanum. Smyrjið sýrða rjómanum á botninn. Brytjið apríkósur niður, setjið ofan á sýrða rjómann og rúllið kökunni upp. Setjið á disk, það er mjög fallegt að sigta örlítið af flórsykri yfir.