Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Rúllutertur eru partur af æskuminningum margra, ljós með sultu eins og þessi hér eða brún með smjörkremi. Þetta er einfaldur bakstur, flokkast undir “þeytt deig” þ.e. byrjað á því að þeyta sykur og egg saman. Ég er oft spurð að hversu lengi á að þeyta eggjahræruna og er gott að ganga út frá því að þeyta á meðalhraða í hrærivél í 8-10 mín. Þá er blandað létt og sykurinn vel blandaður eggjunum og kakan fellur ekki. Gagnlegt er að kunna að gera öskju úr bökunarpappír eins og hér er sýnt en þá er leikur einn að gera allskyns rúllutertur t.d. marensrúllutertu og margt fleira. Það þarf bara að reikna gróflega stærðina, oft er stærðin á kökunni gefin upp í uppskriftinni og þá er bara að klippa pappírinn eftir því sem passar.
4 egg, meðalstór
130 g sykur
1 tsk. vanilludropar
70 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
180 g rauð berjasulta
Hitið ofninn á 200°C (195°C blástur). Setjið egg og sykur ásamt vanilludropum í hrærivélaskál og þeytið saman á meðalhraða í 8-10 mín. Sigtið hveiti og lyftiduft saman í skál og bætið salti þar út í, leggið til hliðar.
Takið örk af bökunarpappír 38×45 og brjótið inn á 5 cm allan hringinn. Hellið 1-2 msk af matarolíu á pappírinn og penslið hann vel, líka kantbrotið. Klemmið hornin saman með fingrunum og brjótið þau saman svo pappírinn verði eins og askja, heftið hornin saman. Setjið bökunarpappírinn í ofnskúffu.
Blandið nú hveitiblöndunni í eggjahræruna og blandið því saman við með sleikju. Hellið deiginu í bökunarpappírsöskjuna og jafnið því út. Bakið þetta í 10 mín, kakan er bökuð þegar hættir að heyrast “hviss” hljóð í henni og hún er snertiþurr. Ekki opna ofninn fyrstu 8 mín. svo hún falli ekki. Hafið nýja örk af bökunarpappír tilbúna á borðinu, gott er að sáldra svolitlum sykri á pappírinn svo kakan festist ekki við. Takið þá kökuna úr ofninum og rífið pappírinn frá í hliðunum og hvolfið kökunni á pappírinn. Losið pappírinn varlega af kökunni. Látið hana kólna í 10 mín og smyrjið síðan sultunni á botninn. Rúllið kökunni upp. Margar uppskriftir af rúllutertum eru minni eða með 3 egg . Þá má pappírsörkin bara vera örlítið minni svo kakan haldi þykkt sinni, eða um 34×40 cm. Það er alltaf gott að baka hana samt í ofnskúffunni þó hún fylli ekki út í hliðarnar á henni og fá þar stuðning frá hliðunum.