Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Marengsterta sem heitir eftir glæsilegri rússneskri ballerínu, Pavlovu, hefur slegið í gegn um allan heim. Þetta er falleg og gómsæt kaka sem margir marensrunnendur hafa lagt á sig að læra. Hér er mín útgáfa.
Kakan:
4 stórar eggjahvítur (220 g)
225 g sykur, best að nota caster sugar eða baking sugar
2 tsk. maísenamjöl eða kartöflumjöl
2 tsk. edik
Uppskriftin gefur 1 stóra eða 8 litlar kökur. Stillið ofninn á 150°C. Passið að hrærivélaskálin sé tandurhrein svo eggjahvíturnar þeytist vel. Setjið bökunarpappír á ofnplötu, og teiknið 20 cm hring á pappírinn. Þeytið eggjahvítur þar til þær eru farnar að stífna, bætið þá sykri, einni matskeið í einu,í hvíturnar og þeytið áfram í góða stund (5-10 mín) eftir að allur sykurinn er komin út í. Bætið maíenamjöli eða kartöflumjöli út í ásamt edikinu og hrærið saman í eina mínútu í viðbót.
Setjið marensblönduna í miðjuna á hringnum sem þið teiknuðuð og breiðið úr honum innan hringsins, athugið að marensinn kemur til með að stækka við bakstur.
Setjið marensinn í ofninn og lækkið hitann í 110°C. Bakið pavlovuna í 90 mínútur, slökkvið á ofninum og látið hana kólna þar. Hún má gjarnan bíða í ofninum yfir nótt.
Ofan á:
4 dl rjómi
2 msk. flórsykur
1 tsk. vanilludropar
ávextir eftir smekk og sem eru til hverju sinni
Þeytið rjómann með flórsykri og vanillu. Breiðið úr honum á pavlovuna. Skerið ávextina í passlega bita og raðið fallega ofan á kökuna.
Góð ráð
# Passið vel að skálin sem þið þeytið eggjahvíturnar í sé alveg tandurhrein. Smá arða af fitu í skálinni getur orðið til þess að hvíturnar stífni ekki. Eggjahvítur verða að vera alveg aðskildar frá rauðunum, smávegis af rauðu getur eyðilagt allt. Best er að aðskilja egg sem eru köld úr ísskáp, þá er rauðan afmarkaðri frá hvítunni og betra að aðskilja þau.
# Ef þið þurfið að gera hana með fyrirvara og geyma hana er ekki gott að frysta eða geyma óskreytta í ísskáp, best að geyma hana í loftþéttum umbúðir við stofuhita.
# Ef þið gerið 8 litlar þarf að gera ráð fyrir styttri bökunartíma. 60 mín er passlegt.