750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Biskotti

Biskotti þáttur var fyrsta verkefni mitt á Gestgjafanum. Þátturinn var í kökublaði sem kom út árið 2006 og var mjög gaman að vinna það. Hér er uppskriftin, þessar hafa verið bakaðar hér heima ansi oft og gjarnan gefnar sem matargjöf. 

Biskotti

24-26 stk.

 

300 g hveiti, gjarnan 00 pitsahveiti, annars bara þetta venjulega

120 g sykur

50 g 3 tegundir af hnetum, samtals 150 g eða blanda af hnetum og trönuberjum

2 stór egg

1 eggjarauða

2 tsk. vanilludropar

 

150 g súkkulaði til að hjúpa með ef vill. 

 

Hitið ofninn í 180°C eða 160°C á blæstri. Setjið öll þurrefni í eina skál og sláið eggin saman með vanillunni í annari. Blandið þessu saman og hnoðið í samfellt deig. Setjð bökunarpappír á ofnplötu og mótið hleif um 10x35 cm stóran. Það er gott að nota blauta fingur. Bakið hleifinn í 25-30 mín, hann á að vera bakaður í gegn. Setjið hann á skurðarbretti og skerið hann í þunnar sneiðar, rúmlega 1 cm þunnar. Raðið þeim á bökunarplötuna og bakið aftur í um 10-15 mín eða þar til þær eru farnar að taka lit.

Það er ekki nauðsynlegt að dýfa þeim í súkkulaði en hér er samt aðferðin.

Bræðið súkkulaði og dýfið neðri helmingnum á kökunum í það. Látið kólna, gott að láta þær standa við glugga.

Biskotti
Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post