750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Skúffukaka

Skúffukaka

Hér er uppskrift að skúffuköku æsku minnar. Líklega hefur mamma bakað hana oftar en aðrar kökur því hún er fljótleg og ekki þarf að mýkja smjörið því það er sett bráðið út í deigið. Bökunartíminn er stuttur þannig að frá hugmynd að köku eru bara 30 mínútur. Ég bakaði hana oft fyrir börnin mín og nú þau fyrir sín börn. Er ekki lífið svolítið sætt stundum.

Kakan:

2 stór egg eða 3 minni

180 g sykur

150 g smjör, brætt

1 ½ dl mjólk

270 g hveiti

2 tsk lyftiduft

3 msk. kakó

2 tsk vanilludropar

Hitið ofninn í 225°C á blástur. Þeytið saman egg og sykur þar til það er ljóst og loftkennt. Blandið hveiti, lyftidufti og kakó saman í skál og sigtið út í eggjahræruna. Blandið bræddu smjöri og mjólk saman og bætið því útí ásamt vanilludropum og hrærið allt val saman. Hellið deiginu í smurða ofnskúffu, 26x34 cm  stóra eða aðra sambærilega . Það er gott að setja bökunarpappír í botninn.  Bakið kökuna í 8-10 mín. Látið hana kólna aðeins.

Krem:

200 g flórsykur

2 msk. kakó

4 msk. brætt smjör

4 msk. kaffi eða heitt vatn

2 tsk. vanilludropar

Sigtið flórsykurinn og kakóið í skál. Bætið öllu út í sem á að fara í kremið og hrærið vel saman. Smyrjið kreminu ofan á kökuna þegar hún er farin að kólna og sáldrið kókosmjöli yfir. Skerið hana í bita, ca. 24. Kakan geymist um viku á svölum stað í loftþéttum umbúðum. Hana má  frysta og geymist hún þannig í 3-6 mánuði.

 

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post