Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Margir hafa fylgst með þáttunum um Juliu Child á sjónvarpi símans. Þættirnir eru mjög skemmtilegir og gaman að fylgjast með hvernig matreiðsluþættir urðu að veruleika í bandarísku sjónvarpi. Í fyrsta þættinum bakaði Julia þessa frönsku súkkulaðiköku sem heitir “Drottningin af Saba” fyrir starfsfólk sjónvarpsstöðvarinnar sem var ekki sannfært um að matreiðsluþættir ættu erindi í sjónvarpið. Ég stóðst ekki mátið og bakaði þessa köku og hún er alveg dásamleg. Nafnið er flott, Frakkar eiga það til að skíra bæði kökur og fleira með flottum nöfnum og þessi fallega kaka á alveg skilið að heita í höfuð á glæsilegri drottningu. Kakan er súkkulaðikaka með stóru S-i og er eins góð og súkkulaðið sem fer í hana.
120 g 70% súkkulaði, brætt í vatnsbaði
3 eggjahvítur
örlítið salt
1 msk. sykur
150 g sykur
3 eggjarauður
2 msk. sterkt kaffi
120 g smjör, mjúkt
30 g möndlumjöl
60 g hveiti
1/4 tsk. möndludropar
Hitið ofninn á 180°C á blástur. Setjið súkkulaði í skál og bræðið á vægum hita yfir vatnsbaði. Þeytið eggjahvítur í hrærivél ásamt salti og 1 msk. sykri þar til þær eru stífar. Setjið eggjahvíturnar í skál og leggið til hliðar. Setjið smjör og sykur (óþarfi að þvo hrærivélaskálina) í skálina og hrærið mjög vel saman, bætið eggjarauðum í og hrærið áfram í nokkrar mínútur, gott er að skafa meðfram með sleikju nokkrum sinnum svo allt blandist vel saman. Bætið kaffi í og hrærið eina mínútu áfram. Blandið möndlumjöli og hveiti saman í skál. Bætið nú súkkulaðinu út í smjörhræruna ásamt möndludropum. Því næst hveitiblöndunni og blandið saman við með sleikju. Þá er komin tími á að bæta eggjahvítum varlega út í með sleikju. Setjið bökunarpappír á botninn á 22cm smelluformi. Hellið deiginu í formið og bakið í 20 mín. Kælið kökuna og setjið síðan á tertudisk. Smyrjið súkkulaðinu yfir og meðfram hliðunum. Skreytið með möndlum.
Ofan á:
60 g 70% súkkulaði
2 msk maple-síróp
60 g smjör
20 möndlur
Bræðið súkkulaðið ásamt sírópinu í vatnsbaði. Takið af hitanum og þeytið smjörið út í í þrem atrenum. Smyrjið kreminu yfir kökuna.