Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Franski bakarinn Pierre Hermé er einn af þekktustu bökurum Frakklands. Hann starfrækir mörg bakarí í París sem eru þekkt fyrir unaðslegar makrónur. Hann hefur gefið út margar kökubækur og þessi dásamlega súkkulaðiformkaka er í einni af þeim. Marsípan, möndlur, súkkulaði og ávextir, allt í einni köku.
240 g smjör mjúkt
170 g sykur
3 egg
240 g hveiti
4 msk. kakó
1 tsk matarsódi
1 dl mjólk eða matreiðslurjómi
80 g döðlur saxaðar
80 g rúsínur eða þurrkuð trönuber eða blanda af báðu
80 g valhnetur saxaðar gróft
80 g súkkulaði saxað gróft
100 g marsípan saxað gróft
Hitið ofninn í 175°C. Hrærið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið eggjum út í einu í einu, hrærið vel saman. Sigtið saman hveiti, kakó og matarsóda. Hrærið hveitiblöndunni, mjólkinni og ávöxtunum saman með sleikju. Setjið í pappírsklætt 30 cm jólakökuform og bakið í klukkustund. Kakan er stór og er hæglega hægt að fá 12-14 sneiðar úr henni. Mjög gott að frysta.