Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
240 g smjör mjúkt
190 g sykur
1 stórt egg
270 g hveiti
160 g haframjöl venjulegt eða grófvalsað eða blanda að báðu
1 tsk. matarsódi
1 krukka rababarasulta eða önnur sulta sem ykkur finnst góð
Hitið ofninn í 200°C. Hrærið saman smjör og sykur. Blandið eggi, hveiti, haframjöli og matarsóda út í og hrærið vel saman. Takið frá 1/4 af deiginu frá til að setja ofan á og geymið. Setjið hinn hlutann í 26 cm smjörpappírsklætt smellumót. Smyrjið sultu yfir. Setjið smá hveiti á borðið og fletjið út deigið sem þið tókuð frá, skerið í ræmur og leggið í krossa ofan á sultuna. Þið getið líka mulið deigið yfir ef þið treystið ykkur ekki í að fletja deigið út. Bakið í 25-30 mín. Þessi kaka geymist vel í frysti.