750 grammes All blogs Top blogs Food & Drink
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog
MENU

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Kleinurnar hennar mömmu

Kleinurnar hennar mömmu

Kleinur eru mjög stór partur af bakstursmenningu þjóðarinnar. Þær eru eitt af því fyrsta sem manni dettur í hug þegar talað er um íslenskt bakkelsi. Mamma notaði gjarnan nýmalaðar kardimommur í kökubakstur og þær gefa mjög gott bragð í kleinur. Uppskriftin gefur 70-80 kleinur.

 

1 kg hveiti

100 g sykur

6 tsk. lyftiduft

1 ½ -2 tsk. malaðar kardimommur, sigtið það grófasta frá

100 g smjör, kalt í litlum bitum

1 appelsína, börkur af henni (má sleppa)

1 sítróna, börkur af henni (má sleppa)

2 tsk vanilludropar

½ - 1 tsk. kardimommudropar

5 dl súrmjólk

2 egg

2-3 stk. Palmín til að steikja upp úr

Setjið hveiti sykur, lyftiduft og malaðar kardimommur í stóra skál og blandið saman. Myljið smjörið saman við. Sláið eggin saman í skál og bætið súrmjólkinni báðum tegundum af berki ef þið notið hann, vanilludropum og kardimommudropum saman við. Hellið súrmjólkurblöndunni út í þurrefnin og blandið saman með sleif. Setjið deigið á borðið og hnoðið saman í samfellt deig.

Skiptið deiginu í fjóra parta. Rúllið hvern part út, einn í einu, á hveitistráðu borði. Skerið deigið í ræmur með kleinujárni eða hníf í ca 5 cm lengjur og síðan í tígla. Safnið afskurðinum saman sér og rúllið út síðast. Gott er að taka frá nokkra deigbita frá til að prófa þegar þið athugið hvort feitin sé nógu heit. Skerið í miðjuna á hverjum bita með hníf og snúið síðan upp á svo verði kleina. Þið eigið að fá 70-80 kleinur úr uppskriftinni.

Hitið Palmín í stórum potti . Steikið kleinurnar í heitri feitinni, það er gott að nota prjón eða eitthvað slíkt áhald til að snúa kleinunum á meðan á steikingu stendur til að fá jafna steikingu.

Setjið nýsteiktar kleinur á eldhúspappír svo drjúpi sem mest af feitinni af þeim. Kleinur eru bestar nýsteiktar en mjög gott er að frysta þær strax, taka út eftir þörfum og hita í 8-10 mín. í 100°C heitum ofni.

# Mér finnst ómissandi að nota nýmalaðar kardimommur. Ég mala þær í kaffikvörn en það er líka gott að nota lítinn nutribullet.

# Gott er að nota víðan og djúpan pott svo vel fari um kleinurnar í steikingunni. Potturinn minn er 6 lítra og ég nota 3 stykki af Palmíni í þessa uppskrift. Ef þið eruð með minni pott duga 2 stykki.

# Kaffikvörn er þarfaþing þegar mala á kryddblöndur í matargerð eða kardimommur eins og hér.

 

 

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post