Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Konfekttertan er búin að vera með mér lengi og hefur verið fastur liður sem eftirréttur í matarboðum. Uppskriftina fékk ég í dönsku blaði sem hét "Mad og Gæster". Amma mín var áskrifandi að dönsku blöðunum og þetta hefti fylgdi með mánaðarlega. Þessi hefti höfðu mikil áhrif á mína matarsögu því ég lús las þau í heimsóknum hjá ömmu. Þegar ég var rúmlega tvítug gaf hún mér dágóðan stafla af heftunum og betri gjöf var ekki hægt að hugsa sér. Ég á þetta safn enn fjörtíu árum síðan og varðveiti þar góðar minningar.
Marensbotn
2 eggjahvítur
50 g sykur
50 g flórsykur
Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru farnar að verða froðukenndar. Blandið báðum tegundum af sykri saman í skál og bætið honum í eggjahvíturnar smátt og smátt, 1 msk. í einu og hrærið á meðan. Hrærið deigið áfram í 3-4 mínútur eftir að allur sykurinn er komin út í. Setjið bökunarpappír í 22 cm lausbotna form og smyrjið hliðarnar með olíu. Jafnið deiginu í formið og bakið þetta í miðjum ofni 15 mín. Lækkið hitann í 100°C og bakið í 45 mín í viðbót. Má líka baka botninn á plötu með pappír.
Makrónubotn
100 g kransakökumassi (ren rá marsipan)
100 g sykur
½ dl eggjahvíta ( u.þ.bl.1 ½ eða 2 fer eftir stærð eggjanna)
Hitið ofninn í 180°C. Rífið marsípanið gróft niður á rifjárni og setjið í pott ásamt sykri og eggjahvítu. Hitið vel saman þar til vel samlagað og farið að hitna vel. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og teiknið 22 cm hring á pappírinn. Smyrjið inn í hringinn með matarolíu. Smyrjið deiginu á pappírinn inn í hringinn. Bakið botninn í 10 mín. Hvolfið heitum marsípanbotninum strax eftir að hann er komin úr ofninum á aðra örk af bökunarpappír og flettið pappírnum af.
Á milli og ofan á:
100 g súkkulaði (50 %), brotið niður í skál
1 dl rjómi
4 msk. sjerrí eða annað vín til að bleyta botninn með( má sleppa)
3-4 dl rjómi, léttþeyttur
saxað súkkulaði eða gott nammi eftir smekk í skraut
Leggið marensbotninn á tertudisk.
Hitið rjómann og hellið yfir súkkulaðið, látið bíða í 3-4 mín, hrærið saman. Jafnið súkkulaðiblöndunni yfir marensinn. Leggið makrónubotninn ofan á og bleytið í honum með sjerrí. Setjið rjóma ofan á og skreytið með súkkulaði eða flottum molum, á myndinni notaði ég danskar lakkrískúlur.