Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Hveitikökur voru alltaf bakaðar fyrir mannfagnaði í sveitinni. Þær voru smurðar með smjöri og reyktum lax eða nautatungu. Þessi uppskrift kemur frá Krossnesi á Mýrum en húsfreyjan sem þar bjó er mágkona mín. Ég minnkaði hana niður um helming. Húsfreyjunni á þeim bæ fannst nú ekki taka því að baka úr minna magni en kíló af hveiti og oftast var uppskriftin margfölduð.
500 g hveiti
1 msk. sykur
1 tsk. salt
1 ½ tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
50 g smjör
1 egg
4 dl súrmjólk eða mjólk eða blanda af báðu
Blandið saman hveiti, sykri, salti, lyftidufti og matarsóda. Myljið smjörið út í. Bætið eggi og mjólk í og hnoðið sprungulaust deig. Bætið hveiti í eftir þörfum. Skiptið deiginu í 16-18 bita. Hver deigbiti á að vera um 70 grömm. Fletjið út kringlóttar kökur á hveitistráðu borði, þær eiga að vera u.þ.bl. 20 cm í þvermál. Þetta er ágætt að gera jafnóðum og bakað er. Bakið kökurnar á heitri þurri pönnu um 1 ½ -2 mín á hvorri hlið. Það er gott að vera með 2 pönnur við baksturinn sérstaklega ef uppskriftin er tvöfölduð.