Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Þessir flottu snúðar eru uppáhald allra í fjölskyldunni. Þeir sóma sér vel í afmæli því uppskriftin er stór eða bara að baka þá einhverja helgina þegar von er á gestum, stórum eða smáum. Þið getið gert deigið daginn áður og látið það hefast yfir nóttina í ísskápnum. Gott er þá að taka deigið út a.m.k. 2 klukkutímum áður en á að nota það svo auðvelt sé að fletja það út.
Deig:
650 g hveiti
1 tsk. salt
50 g sykur
2 tsk. þurrger
2 ½ dl mjólk
½ dl vatn
3 egg, slegin saman í skál
120 g smjör, mjúkt
160 g pekanhnetur eða blanda af pekan - og valhnetum, saxaðar.
Setjið hveiti, salt, sykur og þurrger í skál. Velgið mjólk og vatn þar til blandan er fingurvolg, hellið henni í hveitiblönduna ásamt eggjum og smjöri. Hnoðið vel saman og bætið meira (u.þ.b. 50 g ) af hveiti saman við ef þarf svo þið fáið samfellt deig. Látið þetta lyfta sér á hlýjum stað í 60 mín, eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
Skiptið deiginu í tvo hluta og rúllið annan hlutann út á hveitistráðu borði með kökukefli í ferhyrning u.þ.b. 30x24 cm á stærð. Blandið því sem fer í fyllinguna saman, stráið henni á útflatt deigið og rúllið upp í pylsu. Skerið í 12 snúða. Fletjið hinn hlutann af deiginu út og farið eins að, 24 snúðar samtals.
Klæðið ofnskúffu, 40x40, með bökunarpappír. Sjóðið karamelluna saman í 1 mínútu og hellið henni í ofnskúffuna og stráið pecanhnetum á botninn. Raðið snúðunum í ofnskúffuna en hafið gott bil á milli svo þið sjáið vel í hneturnar. Snúðarnir stækka við að lyfta sér og líka við baksturinn. Látið þetta lyfta sér í 40 -50 mín. Stillið ofninn á 175°C. Bakið snúðana í 30 mín eða þar til þeir eru komnir með góðan lit. Hvolfið öllu á bökunarpappír svo hnetur snúi upp og passið að skafa hneturnar sem er á botninum af svo snúðarnir séu með vel af þeim ofan á.
Fylling:
80 g sykur
80 g púðursykur
1 tsk. kanell
Blandið öllu saman í skál.
Karamella:
200 g púðursykur
120 g smjör
1 dl síróp
Sjóðið allt saman í 1-2 mín.