750 grammes
All our cooking blogs Edit post Follow this blog Administration + Create my blog

Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði

Peru súkkulaðibaka

Peru súkkulaðibaka

Þessi fallega baka er uppáhald allra tíma. Hún er ekki of sæt og með dásamlegu súkkulaði-vanillubragði á móti perunum. Getur verið eftirréttur á eftir léttri máltíð eða bara með kaffibolla eða te. Yndisleg nýbökuð en má líka frysta og hita upp frosna við 100°C í 15 mín. 

Bökuskel

175 g hveiti

100 g kalt smjör í bitum

2 msk sykur

½ tsk salt

1 eggjarauða

1 msk ískalt vatn

 

Fylling:

1 stórt egg

1 eggjarauða

1 ½ dl rjómi

½ tsk vanilludropar

4 þroskaðar perur

100 g súkkulaði 70 %

2 msk sykur

Byrjið á því að útbúa bökuskelina. Sigtið hveitið  á borðið, bætið sykri og salti í og myljið smjörið saman við. Gerið laut í hveitið og  setjið eggjarauðuna og vatn þar í og hnoðið saman þar til vel samlagað (þetta má líka gera í skál). Pakkið deiginu í bökunarpappír og geymið í ísskáp í 15 mín. Einnig má laga deigið í matvinnsluvél. Þá er allt nema eggjarauða og vatn sett í vélina stillt á mesta hraða í 1 mín, rauðu og vatni bætt í og hrært saman aðra mín eða þar til vel samlagað. Hitið nú ofninn í 200°C. Smyrjið 24-26 cm bökuform. Fletjið deigið út á hveitistráð borð ca. 30 cm á kant, leggið deigið í formið. Ekki hafa áhyggjur þó að deigið sé ekki samfellt þá er bara að skeyta og bæta. Kælið deigið á meðan þið útbúið fyllinguna.

Hrærið egg og eggjarauðu saman í skál. Bætið rjóma og vanillu út í og hrærið vel saman. Skrælið og kjarnhreinsið  perurnar, skerið í þunnar sneiðar þversum og leggið til hliðar. Saxið súkkulaðið gróft og leggið í bökuskelina. Raðið perunum ofan á, passið að láta þær halla rétt þær verða svo fallegar þannig (sjá mynd). Hellið sósunni yfir stráið sykri yfir perurnar. Bakið kökuna í 10 mín lækkið hitann á ofninum í 180°C og bakið áfram í 25-30 mín. Berið bökuna fram með rjóma sem er léttþeyttur með 1-2 tsk vanillusykri.

Back to home page
Share this post
Repost0
To be informed of the latest articles, subscribe:
Comment on this post