Kökurnar og baksturinn sem mamma gerði
Uppskriftin að þessari köku kemur frá Jóhönnu vinkonu minni að vestan. Við bökuðum oft saman þegar við vorum unglingar og þessi kaka var í uppáhaldi.
240 g smjör
150 g sykur
4 egg
150 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 175°C. Hrærið smjör og sykur mjög vel saman eða þar til það er ljóst og kremkennt. Bætið eggjum út í einu í einu og hrærið vel saman. Ekki hafa áhyggjur þó deigið skilji sig, það lagast þegar hveitið kemur út í. Bætið nú hveiti og lyftidufti út í, Hrærið vel saman. Jafnið deiginu í smurt form og bakið kökuna í 50-60 mín. Látið kökuna kólna aðeins, losið hana úr forminu og hvolfið á disk.
Karamellukrem:
2 dl rjómi
2 msk. síróp
120 g sykur
30 g smjör
1 tsk. vanilludropar
Sjóðið rjóma, síróp og sykur saman við vægan hita þar til það verður karamellukennt, það tekur um 8-10 mín. Bætið smjöri og vanillu út í. Hellið karamellunni yfir kökuna.